Tweed Ride Reykjavík 2018
Árið 2009 tóku reiðhjólaáhugamenn í London sig saman og stóðu fyrir hóphjólreiðum í borginni. Þessi atburður var þó ekki bara að koma saman og hjóla, heldur klæddu þáttakendur sig í klassísk föt og draktir í anda breskra hefðamanna og –kvenna. Hjólin sem hjólað var á voru á sama hátt klassísk og virðuleg borgarhjól.
2012 var komið að Reykjavík. Tweed Ride Reykjavik var haldið í fyrsta skipti þann 16. Júni 2012 og tóku um það bil 70 manns þátt í atburðinum. Tilgangurinn var að hittast og njóta þess að hjóla saman um miðbæ Reykjavíkur. Nú í ár verður þessi skemmtilegi viðburður endurtekinn í sjötta skipti. Mæting er fyrir framan Hallgrimskirkju og síðan verður lagt að stað niður í bæ, í kringum Tjörnina og átt að Vesturbænum. Þar verður stutt hressingarpása tekin á Hotel Marina. Síðan verður haldið áfram og hjólað upp að Laugarvegi, niður hann og endað á Ægisgarður út á Granda. Þar fer fram verðlaunaafhending fyrir fallegasta hjólið og best klæddu þátttakendurna (dömu og herra).Svo fáum við líka fyrstu TWEED RIDE BJÓRIÐ frá Ægisgarð að smakka.
Í stuttu máli sagt, þá er þetta stórskemmtilegur viðburður og vekur alltaf athygli.
Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar, og Reiðhjólaverzlunin Berlin munu leggja til verðlaunin fyrir best klædda herrann, best klæddu dömuna og flottasta hjólið. Það gæti þvi borgað sig að undirbúa sig vel!
Vínframleiðandi Cono Sur er styrkjaðilar okkur í ar, sem ætla ekki bara að hjalpa okkur að útvega armbönd og númerskildi, þeir ætla líka bjóða í smá vínsmökk í byrjun.
Tweed Ride Reykjavík 2018 fer fram 2.Júni, mæting kl. 14 við Hallgrímskirkju eins og hefð er.
Meiri upplýsingar undir dagskrá og skráning.